Eldvari Formúla Nr. 1
Fyrir allan náttúrulegan og blandaðan vefnað (ull/gervi), gluggatjöld og bólstraða hluti þ.m.t. bómul, velúr, flauel og reion. Náttúruleg veggfóður (umbúðastriga o.s.frv.), mottur og teppi.
Notkun:
Hægt að nota í úðabrúsa, með bursta eða til að leggja í bleyti. Þegar vefnaður er dýfður í upplausn skal nota plast-, ál- eða ryðfríar stálumbúðir. Vefnað ætti að gegnbleyta eða bleyta jafnt yfir allt (úðun).
Upplausn:
Blandið 1 hluta af efni saman við 1 hluta af vatni (1:1).
Magn:
Magn fer eftir hversu fljótt vefnaður dregur efnið í sig. Venjulegur skammtur er um 5 lítrar á hverja 80 m2.
Varúð:
Forðist snertingu við húð og augu. Notið hlífðargleraugu ef úðabrúsi er notaður. Notið hanska ef séð er fram á langvarandi snertingu við efni eða ef sá sem framkvæmir aðgerð er með viðkvæma húð.